



Hljóðdempandi veggpanelar úr felt efni sem Flöff framleiðir úr endurunnum textíl og afgangs íslenskri ull. Panelarnir sameina hönnun og virkni, þeir setja svip á rýmið um leið og þeir hjálpa til við að mýkja hljóðvistina.
Áferð og litbrigði efnisins ráðast af hráefninu sem fer í framleiðsluna og því eru engir tveir panelar nákvæmlega eins. Hver panell ber þannig með sér sögu efnis sem hefur fengið nýtt hlutverk.
Einn á vegg eða heill flötur.
Panelarnir eru hannaðir til að standa einir og sér eða raðast saman í stærri samsetningar. Þannig getur þú skapað þína eigin útgáfu með mismunandi formum, litum og uppröðun. Hægt er að hengja þá upp langsum eða þversum.
45.000 kr.
Miðstærðar veggpanell er 26 cm á breidd og 86 cm á lengd.
Á bakhliðinni eru skráargatsfestingar til upphengingar á skrúfu eða nagla.
© 2026 Flöff • Allur réttur áskilinn • Friðhelgisstefna • Skilmálar