Elding hvalaskoðun hefur í gegnum árin safnað saman ansi fjölbreyttum textíl. Fánar sem hafa blaktað í íslenska rokinu, starfsmannafatnaður, björgunarvesti og hlýir kuldagallar sem hafa haldið gestum heitum á meðan þeir skima eftir hvölum úti á hafi.
Þegar flíkurnar hafa lokið sínu upphaflega hlutverki situr þó eftir spurningin: Hvað tekur við?
Elding hefur lengi lagt mikla áherslu á sjálfbærni og hringrás í sinni starfsemi og hlotið Bláfánann fyrir starfsemina. Textíllinn var hins vegar einn af þeim efniviðum sem enn vantaði betri farveg fyrir. Þar kom Flöff inn í myndina.
Fyrsta skrefið var einfaldlega að kafa ofan í efniviðinn. Flíspeysur, fánar, björgunarvesti, vinnufatnaður, kuldagallar og alls konar textíll með ólíka eiginleika og ólíkar sögur. Fyrir okkur hjá Flöff var þetta bæði spennandi og ákveðin áskorun. Hvernig væri hægt að nýta svona fjölbreyttan efnivið aftur og skapa úr honum eitthvað sem hefði raunverulegt notagildi?
Eftir rannsóknir, tilraunir og samtöl við Eldingu ákváðum við að byrja á kuldagöllunum. Kuldagallarnir voru teknir í sundur og efniviðurinn nýttur á ný. Úr þeim urðu skemmtilegar töskur - í laginu eins og hvalir. Hvalatöskurnar fóru síðan aftur heim til Eldingar, þar sem þær voru seldar í minjagripaverslun fyrirtækisins. Gestir sem höfðu farið út á sjó með Eldingu gátu þannig tekið með sér heim einstakan minjagrip úr efniviði sem hafði farið ótal ferðir út á haf - og heldur jafnvel áfram ferðalaginu langt út fyrir Íslandsstrendur í ferðatösku gestsins.

© 2026 Flöff • Allur réttur áskilinn • Friðhelgisstefna • Skilmálar