Gult, rautt og ómögulegt að ruglast á því hvaðan það kemur. DHL starfar í yfir 220 löndum og landsvæðum og einkennislitir fyrirtækisins ferðast því ansi víða um heim.
Þegar DHL leitaði til Flöff fengum við fjölbreytt safn af starfsmannafatnaði í hendurnar; boli, buxur og auðvitað hinar áberandi gulu og rauðu peysur.
Á þessum tíma var textíltætarinn okkar ekki kominn til sögunnar, svo í stað þess að tæta fatnaðinn niður þurftum við að hugsa: Hvað getum við gert úr flíkunum eins og þær eru?
Úr urðu tölvutöskur, tote-töskur og sæti fyrir móttöku DHL.
Sætið varð að eins konar DHL-starfsmanni sem aldrei fer af vaktinni. Gula og rauða flíspeysan myndar sætið og fyrir framan það situr DHL-kassi – svo útkoman minnir á starfsmann sem heldur á pakka á meðan gestir tylla sér niður og bíða eftir að senda eða sækja sína eigin.
Á sætinu stendur „The Comfort of Sustainability“ – sem í þessu tilfelli má taka alveg bókstaflega.
Gamli vinnufatnaðurinn er nefnilega orðinn að þægilegasta starfsmanninum á staðnum.

© 2026 Flöff • Allur réttur áskilinn • Friðhelgisstefna • Skilmálar