Áður en Flöff varð til stofnuðu Ólöf og Sæunn Slembival, þar sem þær unnu að því að finna skapandi leiðir til að nýta textíl sem annars hefði orðið að úrgangi. Slembival varð síðar hluti af Flöff og lagði grunninn að þeirri hugsun sem við vinnum áfram með í dag.
Eitt af verkefnum Slembivals var samstarf við Ölgerðina. Þar fengum við gamlan starfsmannafatnað úr framleiðslu fyrirtækisins sem var ekki lengur nothæfur. Í stað þess að farga fatnaðinum tókum við hann í sundur, unnum efnið áfram og lituðum það til að skapa nýtt hráefni.
Úr efninu hönnuðum og framleiddum við nýja grjónapúðastóla sem fengu síðan nýtt hlutverk í anddyri Ölgerðarinnar. Stólarnir voru merktir með textanum „Ég var einu sinni starfsmannafatnaður“ – þannig varð uppruni efnisins sýnilegur hluti af hönnuninni og sögunni á bak við vöruna.
Þessi nálgun lifir áfram hjá Flöff í dag. Við vinnum með fyrirtækjum að sérsniðnum samstarfsverkefnum þar sem textílúrgangur þeirra fær nýtt líf og verður að nýjum vörum og lausnum með eigin sögu.
Er fyrirtækið þitt með textíl sem mætti nýta á nýjan hátt? Hafðu samband við okkur og við skoðum hvað hægt er að skapa úr honum.

© 2026 Flöff • Allur réttur áskilinn • Friðhelgisstefna • Skilmálar