Á HönnunarMars 2026 kynnti Flöff nýja hönnun af hljóðdempandi veggpanelum sem unnir eru úr íslenskum textílúrgangi. Verkefnið er hluti af uppbyggingu fyrstu sérhæfðu textílendurvinnslu landsins og markar mikilvægt skref í átt að hringrásarhagkerfi í íslenskri hönnun og framleiðslu.
Panelarnir eru framleiddir úr notuðum textíl, meðal annars frá fyrirtækjum, stofnunum og heimilum sem annars hefði farið til spillis. Efninu er safnað saman og unnið í þæft efni sem nýtist vel til hljóðdempunar.
Hönnun panelanna byggir á einföldum formum þar sem litir og áferð efnisins fá að njóta sín. Hver plata ber með sér sögu fyrra lífs efnisins og sýnir hvernig hægt er að umbreyta úrgangi í nýja vöru. Með því að nýta staðbundið hráefni og framleiða innanlands verða til ný verðmæti úr því sem þegar er til staðar.

© 2026 Flöff • Allur réttur áskilinn • Friðhelgisstefna • Skilmálar